
Hymnodia þýðir dýrðarsöngur. Þetta er latnesk útgáfa gríska orðsins hymnos.
Hymnodia
er í raun sálmasöngur bundinn í ljóðform, lofsöngur við helgihald
kristinna manna. Upphaflega var þetta þó söngur safnaðarins sjálfs við
helgihaldið. Á síðari árum hefur íslenska þjóðkirkjan hvatt mjög til
þess að söfnuðurinn tæki þátt í sálmasöng við guðsþjónustur og aðrar
helgiathafnir. Því má segja að við séum komin aftur til upphafsins í
kirkjunni og söngur kirkjugesta sé hinn eini og sanni hymni.
En Hymnodia er líka kammerkór Eyþórs Inga Jónssonar, annars tveggja organista og
söngstjóra
við Akureyrarkirkju. Í kórinn hefur Eyþór valið einvalalið söngfólks á Akureyri
til þess að flytja metnaðarfulla kórtónlist, bæði kirkjuleg verk og veraldleg.
Hymnodia hefur sungið við helgihald í
Akureyrarkirkju,sungið vesper og við miðnæturmessu á jólum. Þá hefur
Hymnodia komið fram á Hólahátíð, sungið á tónleikum í kirkjunni, í
Ketilhúsinu og víðar. Hymnodia stefnir að því að vera í fremstu röð kóra
á Íslandi.
Heimasíða Hymnodiu er hymnodia.net